"AMOR og ASNINN" - lög Sigfúsar Halldórssonar í Salnum 6. janúar 2023 kl. 20:00.
Tónleikarnir eru í boði Lista- og menningarráðs Kópavogs og eru ætlaðir eldri borgurum í Kópavogi.
Ókeypis aðgangur en taka þarf frá miða.
Lög Sigfúsar verða aldrei of oft sungin. Hver smellurinn á fætur öðrum úr smiðju hans hafa fest sig í sessi sem dægurlög sem bæði ungir sem gamlir þekkja og vekja með okkur góðar minningar sem gott er að orna sér við.
Þeir félagar Örn Árnason og Jónas Þórir segja bless við þréttándann og heilsa Sigfúsi Halldórssyni með léttri söngdagskrá með lögum Sigfúsar. Lög sem hvert mannsbarn á heldra róli þekkir og nýtur að syngja. Stiklað verður á stóru hjá Sigfúsi í tali og tónum og að sjálfsögðu munu allir syngja saman í lok dagskrárinnar.
Ætlir þú að fara á tónleikana þarftu að útvega þér miða fyrirfram, annað hvort með að fara í miðasölu Salarins eða að panta gegnum netið og fara þá inn á þessa slóð:
Comments