Refillinn frá Bayeux. Reynir Tómas Geirsson læknir segir frá og sýnir myndir af reflinum.
Þann 5. júní n.k. förum við kl. 14 frá Gullsmáranum að Landnámssetrinu í Borgarnesi kl. 16 og hlustum á Reyni Tómas Geirsson segja frá hinum heimsfræga refli frá Bayeux. Að frásögn hans lokinni fáum við kjötsúpu, brauð og kaffi á eftir og höldum síðan heim. Ferð, frásögn og matur og kaffi kostar 8.000 kr á mann. Fólk getur skráð sig á lista í félagsmiðstöðvunum okkar eldri borgaranna eða sent okkur nafn og símanúmer á netfangið okkar febk@febk.is Væntanlegir ferðalangar greiða svo ferðina á skrifstofu FEBK í Gullsmára 9 miðvikudaginn 2. júní.
Tilefni ferðarinnar í Borgarnes laugardaginn 5. júní er eftirfarandi:
Reynir Tómas er mörgum að góðu kunnur því hann var til margra ára yfirlæknir á Kvennadeild Landspítalans. Eiginkona hans Steinunn Jóna Sveinsdóttir þýddi skáldssöguna "Dvergurinn frá Normandí " eftir Lars-Henrik-Olsen. Sagan fjallar um hvernig hinn frægi Bayeux refill var saumaður í léreft að öllum líkindum í Kent á Englandi um 1076. Refillinn er samfelld myndaröð og lýsir einni mestu orrustu sem orðið hefur á Bretlandseyjum, orustunni við Hastings árið 1066 þegar innrásarlið frá Normandí réðst inn í England og hafði sigur. Refillinn sem er 70,34 metra langur er eitt mesta þjóðargersemi Frakka enn í dag.
Steinunn lést áður en henni tókst að ljúka útgáfu bókarinnar og Reynir lofaði henni að hann myndi ljúka verkinu. Nú er bókin komin út – afar vönduð og prýdd fjölda mynda.
Reynir Tómas segir ekki frá efni bókarinnar í sýningunni heldur frá tilurð refilsins, saumaaðferðinni, – refilsaum sem er frá tímum víkinga og hvernig refillinn hefur varðveist í gegnum aldirnar. Einnig rekur hann söguna sem myndirnar á reflinum túlka. Reynir er afar góður sögumaður og innblásinn af efninu.
Lagt verður af stað frá Gullsmáranum kl. 14:00 og hefst kynningin kl. 16:00 . Eftir kynninguna er boðið upp á kjötsúpu, brauð og kaffi í Landnámssetrinu. Ferðin kostar 8000.- krónur. Sjálfsagt er rétt að minna fólk á að hafa "grímu" með sér.
Góðfúslega skráið ykkur sem fyrst.
Yorumlar