top of page
Search

Íþróttavika í Kópavogi 23. – 30. september

  • FEBK
  • Sep 21, 2021
  • 1 min read

Kópavogsbær tekur þátt í "Íþróttavikunni" sem er hluti Íþróttaviku Evrópu Hún er haldin 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna við hreyfingarleysi meðal almennings. Hér er í Kópavogi verða sjö atburðir í boði í í samstarfi við íþróttafélögin og fleiri fagaðila.

Fimmtudagur 23. September kl: 13:00: Heilsuhringurinn við Kópavogskirkju- garð verður genginn undir leiðsögn Friðrik Baldurssonar, garðyrkjustjóra Kópavogs.

Föstudagur 24. September kl: 07:00: Rólegt morgunhjól frá Smáranum með hjólreiðadeild Breiðabliks. Skiptum í tvo hópa (rólegt og rólegri) og hjólum í klukkutíma og endum í kaffi á Brikk á Kársnesi. Æfingin er á götuhjóli. Hjóladeild Breiðabliks.

Föstudagur 24. September kl: 20:30: Kynning á tennis og padel í Tennishöllinni. Patricia Husakova tennisþjálfari kynnir. Léttar veitingar að leik loknum. Tennishöllin og Tennisfélag Kópavogs.

Laugardagur 25. september kl: 09:00: Fjallahjólaæfing í Guðmundarlundi. Mæting fyrir framan aðalinnganginn í Guðmundarlundi. Skipt í tvo hópa, annar hópurinn hjólar nýjan fjallahjólaslóða í og við Guðmundarlund en hinn hópurinn fer auðveldari hring í Heiðmörk. Þjálfarar fara með báðum hópum og æfingin er 1,5-2 klst eftir smekk. Æfingin er á fjallahjóli. Hjóladeild Breiðabliks, Kópavogi.

Laugardagur 25. september kl: 10:00-13:00 verður opið hús hjá siglingafélaginu Ými við Naustavör.

Ýmir og samstarfi GG sport fræða um siglingasport og gefinn verður kostur á að komast í kynni við sjóinn á kajökum. Skútusigling ef veður leyfir. Siglingafélagið Ýmir, Naustavör.

Þriðjudagur 28. september kl: 16:00: Kynning á Ringó hjá íþróttafélaginu Glóðin í íþróttahúsi Lindaskóla.

Miðvikudagur 29. september kl: 17:00: Núvitund og samkennd í eigin garð.

Núvitundaræfing undir leiðsögn Bryndísar Jónu Jónsdóttur frá Núvitundarsetrinu. Viðburðurinn fer fram í Geðræktarhúsi, Kópavogsgerði 8 (Gamla Hressingarhælið). Hámark 30 þátttakendur.

 
 
 

Comments


Mikið lesið
Nýlegar fréttir
Fréttasafn
Leita eftir innihaldi

© 2020 FEBK. Gullsmára 9: 201 Kópavogur. Sími: 554-1226    - Vefsíðugerð - Uppsetning í samstarfi við www.

bottom of page